Brúðarkjólabrjálæði í New York

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Yfir eitt þúsund verðandi brúðir tókust á í brjálæðislegri leit að brúðarkjólum á niðursettu verði í New York í gær. Brúðarkjólaútsalan er orðin árlegur viðburður í New York og dregur til sín verðandi brúðir alls staðar að frá Bandaríkjunum sem vonast til að fá kjóla á góðu verði.

Ein kona vaknaði klukkan þrjú um nótt til að keyra til New York frá Boston til að vera systur sinni innan handar við að finna sér brúðarkjól. Í boði voru rúmlega 2.400 kjólar frá mörgum tískuhönnuðum í öllum stærðum og var lægsta verðið í kringum 200 dollara. Samkeppnin var hinsvegar hörð og þurftu  sumar vonsviknar konur frá að hverfa án þess að finna hinn fullkomna brúðarkjól.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is