Avatar fallin af stallinum

Amanda Seyfried leikur aðalhlutverkið í Dear John. stækka

Amanda Seyfried leikur aðalhlutverkið í Dear John. Reuters

Ástarsagan Dear John, með Channing Tatum og Amanda Seyfried í aðalhlutverkum, ýtti óvænt vísindaskáldsögunni Avatar úr efsta sæti aðsóknarlista norður-amerískra kvikmyndahúsa um helgina.

Tekjur af Dear John námu 32,4 milljónum dala um helgina. Það voru einkum ungar konur, sem fóru á myndina sem er byggð á bókinni The Notebook eftir Nicholas Sparks. Svíinn Lasse Hallstrom leikstýrir sögunni. Að sögn Sony, sem framleiðir myndina voru 84% áhorfenda konur og 2/3 voru undir 21 árs aldri. Gagnrýnendur hafa verið lítt hrifnir af myndinni svo ekki sé meira sagt.

Tekjur af  Avatar námu 23,6 milljónum dala og nema nú alls 630,1 milljón í Norður-Ameríku. Er Avatar orðin tekjuhæsta mynd sögunnar í álfunni og sló met Titanic, sem sett var árið 1997. James Cameron leikstýrði báðum þessum myndum. 

Ný glæpamynd með John Travolta í aðalhlutverki, From Paris With Love, fór beint í 3. sætið á listanum en tekjur af sýningu hennar námu 8,1 milljón dala. 

Myndin Crazy Heart, sem sýnd hefur verið í takmörkuðum fjölda kvikmyndahúsa undanfarna tvo mánuði, fór nú upp í 8. sætið en Jeff Bridges, sem leikur aðalhlutverkið, var í síðustu viku tilnefndur til Óskarsverðlauna og þykir líklegur til að hreppa þau.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is