John Dankworth látinn
Breski tónlistarmaðurinn John Dankworth er látinn, 82 ára að aldri. Dankworth var einn kunnasti jasstónlistarmaður í Bretlandi. Hann kom nokkrum sinnum til Íslands á síðustu öld og hélt tónleika ásamt eiginkonu sinni, söngkonunni Cleo Lane.
Dankworth var sleginn til riddara árið 2006 fyrir tónlistarstörf. Hann lést á King Edward VII sjúkrahúsinu í Lundúnum í gær. Cleo Lane tilkynnti lát hans á tónleikum í Buckinghamshire í gærkvöldi, sem haldnir voru í tilefni af því, að 40 ár eru liðin frá því þau hjón stofnuðu leikhús við heimili sitt í Wavendon.
Dankworth lagði ungur stund á tónlistarnám og vakti snemma athygli, var meðal annars valinn tónlsitarmaður ársins 1949, aðeins 17 ára. Hann kynntist konu sinni árið eftir og þau eignuðust tvö börn, sem bæði eru jasstónlistarmenn.
Hann var afkastamikið tónskáld og samdi m.a. tónlist við kvikmyndirnar Saturday Night and Sunday Morning, The Servant og Modesty Blaise og samdi einnig kynningarstef fyrir sjónvarpsþætti á borð við The Avengers.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!










