Óskalög í Akureyrarkirkju

Akureyrarkirkja. stækka

Akureyrarkirkja. Ómar Óskarsson

Í dag kl. 20 heldur Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju, sína árlegu óskalagatónleika. Tónleikarnir hafa jafnan notið mikilla vinsælda og verið vel sóttir.

Eins og áður hefur fólki staðið til boða að biðja um óskalög með því að senda Eyþóri tölvupóst og hefur hann sett saman fjölbreytta dagskrá í samræmi við þessar óskir. Mun hann meðal annars spila verk eftir Sibelius, Mancini, Hjaltalín, Klaufabárðana, smávegis Júróvisjón og verk eftir Birki Blæ sem er aðeins níu ára gamall. Tónleikarnir verða haldnir í Akureyrarkirkju.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is