Penélope Cruz í nýrri mynd von Triers

Penélope Cruz. stækka

Penélope Cruz. Reuters

Upplýst var í morgun, að spænska leikkonan Penélope Cruz muni leika aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd danska leikstjórans Lars von Triers,  Melancholia, sem til stendur að taka upp síðar á árinu.

Í gærkvöldi fékk mynd von Triers, Antichrist, 7 Robert-verðlaun þegar dönsku kvikmyndaverðlaunin voru veitt. Meðal annars var myndin valin besta danska mynd síðasta árs og von Trier besti leikstjórinn. 

Berlingske Tidende fjallar um þetta í dag og segir að von Trier hafi oft tekist að fá þekktar konur til liðs við sig. Þannig hafi Nicole Kidman og Lauren Bacall leikið í Dogville-þríleiknum og Björk Guðmundsdóttir í myndinni Dancer in the dark, sem fékk gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2000. Björk var þá valin besta leikkonan.

Blaðið rifjar upp stormasamt samband þeirra Bjarkar og von Triers meðan á gerð myndarinnar stóð. Þau hafi ekki talast við síðan og von Trier sagði í nýlegu viðtali þegar hann var spurður hvort hann hefði haft samband við Björk undanfarinn áratug: „Nei, það þori ég ekki... Ég held að reiður Íslendingur gleymi engu."  

Penélope Cruz er þekktasta leikkona Spánverja um þessar mundir og hefur unnið mikið með leikstjóranum Pedro Almodóvar. Hún fékk Óskarsverðlaunin í fyrra fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir myndina Vicky Christina Barcelona, sem Woody Allen gerði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is