Réttað yfir lækni Michaels Jacksons

Dr. Conrad Murray mætir í réttarsal Los Angeles í fylgd lögregluþjóna. stækka

Dr. Conrad Murray mætir í réttarsal Los Angeles í fylgd lögregluþjóna. DANNY MOLOSHOK

Conrad Murray, fyrrum læknir Michaels Jacksons, var í dag formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi af saksóknara í Los Angeles. Murray kom í réttarsalinn í lögreglufylgd og lýsti sig saklausan. Verði hann fundinn sekur bíður hans allt að fjögurra ára fangelsisvist.

Blaðamenn og ljósmyndarar söfnuðust saman í kvöld að íslenskum tíma við réttarsalinn til að fylgjast með. Meðlimir úr Jackson fjölskyldunni, þ.á.m. foreldrar Jacksons, eru einnig viðstaddir. Sjálfur mætti Murray í réttarsalinn fyrir stundu í fylgd lögregluþjóna en án handjárna og sagði ekki orð við fjölmiðla.

Jackson lést þann 25. júní síðastliðinn fimmtugur að aldri. Dánarorsök var skammtur af deyfilyfinu propofol í bland við önnur sterk lyf. Murray er ekki talinn hafa gefið honum of stóran af ásetningi og er því ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Grikkir samþykkja niðurskurð

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.
Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

finnur.is