Samantha beitti Lindsay Lohan ofbeldi
Lindsay Lohan var beitt ofbeldi af fyrrverandi kærustu sinni, Samönthu Ronson, að sögn vina hennar. Samband hennar við plötusnúðinn var stormasamt og hefur Lindsay nú sagt vinum sínum frá því að það hafi á köflum verið afar ofbeldisfullt.
Haft er eftir ónefndum „vini“ Lohan að hún hafi stundum verið bólgin í framan eftir að hafa hitt Samönthu, sem hafi kýlt hana og haldið fyrir hálsinn á henni. Þrátt fyrir að þær hafi formlega slitið sambandinu tala þær Lindsay og Samantha engu að síður ennþá stundum saman, þótt það sé Lindsay mjög erfitt.
„Vinur“ Lindsay segir að samband þeirra sé mjög óheilbrigt. „Þær eru ekki saman, en eru það samt. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta, en ég finn virkilega til með Lindsay. Hún er gjörsamlega týnd. Hún er alein og á enga vini til að snúa sér til."
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lindsay sakar fyrrverandi kærustu sína um vafasama hegðun. Í síðustu ýjaði hún að því á Twitter síðunni sinni að Samantha héldi við stjúpbróður sinn en væri líka í sambandi við tvær stelpur. Þrátt fyrir að hafa beint skilaboðunum beint til Samönthu hefur hún ekki svarað ásökununum á Twitter.
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









