Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 8.2.2010
| 5:30
| Uppfært
5:56
Útgáfutónleikar í Salnum
Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari og Greta Guðnadóttir fiðluleikari, verða með útgáfutónleika þriðjudaginn 9. febrúar í Salnum í Kópavogi.
Tilefnið er nýútkominn geisladiskur þar sem þær spila fiðlu- og píanóverk eftir Helga Pálsson (1899-1964). Verk Helga eru lítið þekkt og er þetta í fyrsta sinn sem þau eru gefin út á hljómdiski.
Sum verka hans verða flutt í fyrsta sinn á tónleikunum, en ásamt verkum eftir Helga munu þær einnig spila verk eftir Beethoven. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









