Gascoigne enn og aftur í vandræðum
Paul Gascoigne.
Enski knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Paul Gascoigne hefur enn lent í vandræðum en að sögn breskra fjölmiðla hefur hann verið handtekinn tvisvar í vikunni fyrir ölvun og óspektir.
Gascoigne var á sunnudag handtekinn í Yorkshire ásamt vini sínum grunaður um ölvun við akstur. Hann eyddi nóttinni á lögreglustöð en var látinn laus morguninn eftir.
Síðar þann dag var lögreglan kvödd að hóteli í Darlington þar sem þeir vinirnir höfðu farið mikinn. Að sögn breska blaðsins Guardian var Gascoigne látinn laus án ákæru en vinur hans þurfti að greiða sekt fyrir óspektir á almannafæri.
Gascoigne, sem er 42 ára, var talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Englendinga á níunda áratug síðustu aldar. Hann lenti hins vegar oft í vandræðum vegna áfengisneyslu og óláta og hefur einnig átt við geðræn vandamál að stríða sem rakin voru til áfengisneyslu.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









