Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar: Kjötbolluregni vel tekið
Teiknimyndin Skýjað með kjötbollum á köflum nýtur vinsælda hér á landi en slær Avatar þó seint við þegar kemur að tekjum. Courtesy of Sony Pictures Animation
Það er Avatar, enn og aftur, sem situr í efsta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar og nema heildartekjur af henni, frá fyrstu sýningum, tæpum 130 milljónum króna.
Um 107 þúsund miðar hafa verið seldir á þessa miklu tæknibrellumynd og hafa sjálfsagt margir séð hana oftar en einu sinni.
Hin bráðskemmtilega Skýjað með kjötbollum á köflum, nýjasta teiknimynd Sony, fylgir fast á hæla Avatar enda vinsælt helgarsport hjá fjölskyldum að fara í bíó.
Hefndardramað Edge of Darkness, með þungbrýndum Mel Gibson í aðalhlutverki, er þriðja tekjuhæsta myndin. Rómantíska gamanmyndin It's Complicated er í fjórða sæti.
Íslenskar myndir halda sér á lista, Bjarnfreðarson og Mamma Gógó, báðar margtilnefndar til Eddunnar í ár og hafa hlotið afbragðsdóma.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









