Leikglaður fílsungi í Melbourne

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Dýragarðurinn í Melbourne kynnti á dögunum fyrsta fílsungann sem fæðist í 148 ára sögu dýragarðsins. Aðeins einu sinni áður hefur fíll komið í heiminn í áströlskum dýragarði.

Fjölmiðlamönnum var boðið að fá forskot á sæluna og berja litla fílinn, sem er kvenkyns og hefur enn ekki fengið nafn, augum á undan almenningi. Á morgun verður almennum dýragarðsgestum hinsvegar hleypt að henni og má gera ráð fyrir að aðsóknin verði mikil eins og jafnan er þegar ungviði fæðist í dýragörðunum. Hún verður aðeins höfð til sýnis í stutta stund í einu til að byrja með á meðan hún venst því að vera í sviðsljósinu.

Starfsmenn dýragarðsins segja að fílsunginn, sem fæddist þann 16. Janúar, drekki á bilinu 12 til 14 lítra af mjólk frá móður sinni á dag og bæti um leið daglega á sig einu til tveimur kílóum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

Í gær, 21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í fyrradag Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
í fyrradag Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í fyrradag Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

finnur.is