Sýnir á tískuviku í Köben

Fatnaður sem Rosa og Bryndís hafa hannað. stækka

Fatnaður sem Rosa og Bryndís hafa hannað. mbl.is

Morgunblaðið Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is

Saumavélin hennar Bryndísar Þorsteinsdóttur þagnar ekki um þessar mundir, eða síðan Bryndís fékk það einstaka tækifæri, ásamt samstarfskonu sinni Rosu Winther Denison, að sýna hönnun þeirra á Tískuviku í Kaupmannahöfn sem hefst á morgun og stendur til fjórtánda febrúar.

„Ég ákvað að breyta aðeins til þegar ég lauk BA-gráðu í arkitektúr frá Konunglega arkitektaskólanum hér í Köben í sumar og fór í fatahönnun í lýðháskólanum Veru í þrjá mánuði. Ég hef alltaf verið að sauma en þar fékk ég enn meiri áhuga á fatahönnun og ég og Rosa, sem ég kynntist í skólanum, stofnuðum nýlega merkið RosaBryndis.“ Svo hefur Bryndís söguna þegar blaðamaður biður hana að segja frá tildrögum þess að hún fékk boð um að sýna á tískuvikunni.

„Þetta hefur gerst mjög hratt. Eftir jól förum við Rósa að hanna og sauma saman, vinur hennar er vinsæll plötusnúður, Chris Minus, og hún segir honum frá því sem við erum að gera. Þá vill svo til að hann er í sambandi við konu, sem heitir Tiffani og er frá San Francisco, sem er að skipuleggja atburð fyrir tískuvikuna 2010. Hún var að leita að ungum hönnuðum á uppleið og hann bendir á okkur og þá fóru hjólin að snúast.

Margbreytilegur fatnaður

Atburðurinn sem við sýnum á er þrískiptur; matur, tónlist og tíska. Það er þriggja rétta matseðill og tískusýning á milli rétta, fyrst átti að vera einn hönnuður á milli rétta en það breyttist í að við verðum með allar þrjár sýningarnar. Það verða tveir aðrir hönnuðir að sýna þarna; Kiki Cao sýnir föt sín á gínum og Felix Odhiambo er með skartgripi,“ segir Bryndís. Hvernig föt hannið þið?

„Þetta er stílhreinn margbreytilegur fatnaður, það er ein flík sem hægt er að breyta á marga vegu. Við leggjum t.d. til þrjár leiðir með einni flík en svo getur eigandinn fundið sínar leiðir. Ég fæ fljótt leið á fötum og finnst því er mikill kostur að geta verið með flík sem hægt er að breyta.“

Hvaða þýðingu hefur þessi sýning fyrir ykkur?

„Sýningin á pottþétt eftir að gera mikið fyrir okkur enda haldin fyrir unga hönnuði til að auðvelda þeim að koma sér á framfæri. Þessi atburður er hluti af tískuvikunni og þá fær maður aðgang að tímaritum, tísku-„plöggurum“ og innkaupastjórum, við fáum tækifæri til að sýna okkur fyrir þessu mikilvæga fólki og sjónvarpsstöðin TV2 kemur og tekur viðtal við Tiffani.“

Bryndís og Rosa sitja nú sveittar við og sauma en þær vinna bara tvær í þessu og sýningin er á laugardaginn.

„Við ætlum að sýna 30-40 flíkur og 60-70 stíla þar sem við viljum sýna margvíslega möguleika með sumum flíkunum. Það hentar því vel að vera með þrískipta sýningu. Við þurfum síðan tólf fyrirsætur og erum að vinna í því að finna þær núna.“

Eruð þið að selja RosaBryndis einhvers staðar?

„Nei, við höfum fengið fyrirspurnir en ætlum ekki að byrja að selja fyrr en við erum búnar að sýna og sjá hvernig viðbrögð við fáum.“

Hvað með arkitektanámið?

„Það hefur hjálpað mér mikið í þessu og stórt séð mótað mig sem tískuhönnuð. Það er hugsunarhátturinn, að hugsa út fyrir út fyrir kassann og að forma hluti,“ segir Bryndís að lokum.

www.rosabryndis.com
Rosa og Bryndís.

Rosa og Bryndís.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is