The White Stripes í hart við flugherinn

White Stripes sóttu Íslendinga heim í nóvember árið 2005. stækka

White Stripes sóttu Íslendinga heim í nóvember árið 2005.

Rokkhljómsveitin The White Stripes ætlar í hart gegn bandaríska flughernum, sem notaði eitt af lögum hljómsveitarinnar í sjónvarpsauglýsingu í leyfisleysi.

Í yfirlýsingu frá hljómsveitinni segir að þau séu bæði móðguð og reið yfir notkun lagsins í auglýsingunni, sem sýnd var á besta tíma á meðan Super Bowl keppninni s.k., úrslitum bandaríska fótboltans, stóð á sunnudag. Auglýsingahléið í leiknum er dýrasti auglýsingatími í bandarísku sjónvarpi.  The White Stripes ætla að bregðast hart við til að stöðva notkun lagsins. 

„Við teljum að lagið okkar hafi verið tekið upp og notað án leyfis okkar eða útgefenda okkar. The White Stripes eru bæði móðguð og reið yfir því að flugherinn láti svo virðast sem að við höfum heimilað að eitt af okkar lögum sé notað til að hvetja til nýliðaskráningar í stríði sem við styðjum ekki.

The White Stripes styðja herinn á heimavelli og á þeim tímum sem þjóðin okkar þarf á honum að halda og reiðir sig á hann. Við viljum hinsvegar ekki vera tannhjól í þeirri vél sem knýr stríðið áfram og vonumst til þess að hersveitir okkar snúi aftur heim sem fyrst heilar á húfi."

Í innslaginu var lýst eftir nýliðum í flugherinn, sem m.a. tekur þátt í stríðinu í Írak og Afganistan, undir hljóm lagsins Fell in love with a girl. Talsmenn flughersins hafa ekki tjáð sig um málið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Dóttir Houston á sjúkrahús

Whitney Houston ásamt dóttur sinni Bobbi Kristina Brown.
Í gær, 21:02 Dóttir söngkonunnar Whitney Houston var flutt á sjúkrahús í dag. Ekki er ljóst hvers vegna Bobbi Kristina Brown þurfti á læknisaðstoð að halda. Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

Fjölskylda Houston miður sín

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 20:35 Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston segist miður sín yfir þeim harmleik sem fráfall hennar sé. Houston fannst látin í baðkari á hótelherbergi í gær. Hún var 48 ára. Meira »

finnur.is