Fékk að skila rangeygðri konu

Sendiherrann hafði ekki séð andlit konu sinnar áður en hann giftist henni. stækka

Sendiherrann hafði ekki séð andlit konu sinnar áður en hann giftist henni. ATHAR HUSSAIN

Arabískur sendiherra í Dubai hefur fengið hjónaband sitt dæmt ógilt eftir að hafa uppgötvað að konan hans var rangeygð og með hár í andlitinu.

Brúðurin var með andlitsblæju í þau fáu skipti sem hún hitti tilvonandi eiginmann sinn. Sendiherrann hélt því fram fyrir dómi að móðir konunnar hefði platað sig til að giftast henni með því að sýna henni mynd af systur hennar.

Maðurinn uppgötvaði hvernig konan leit út þegar hann lyfti andlitsblæjunni frá andliti konu sinnar til þess að kyssa hana. Dómstólinn féllst á meginkröfu mannsins og dæmdi hjónabandið ógilt. Kröfu hans um bætur var hins vegar hafnað.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

Í gær, 21:37 Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í fyrradag Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
í fyrradag Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í fyrradag Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

finnur.is