Elton John: Jesús var samkynhneigður

Elton John stækka

Elton John Reuters

Breski tónlistarmaðurinn Elton John segir í viðtali við bandaríska tímaritið Parade að Jesús hafi verið afburðagáfaður samkynhneigður karlmaður. Söngvarinn lætur ekki þar við sitja heldur bætir við að Jesús hafi verið samúðarfullur, sáttfús og skilið vandamál mannkynsins.

Talsmaður Ensku biskupakirkjunnar segir að það sé sennilega best að láta fræðimenn um að upplýsa um kenndir og annað sem viðkemur Jesús, að því er segir á vef BBC.

 Elton John segir meðal annars í viðtalinu að Jesús hafi fyrirgefið þeim sem krossfestu hann og að Jesús hafi viljað að við værum sáttfús og ástrík. Elton John segist ekki vita hvað gera mannfólkið jafn grimmt og raun ber vitni. „Reynið að vera samkynhneigð kona í Miðausturlöndum - þú gætir alveg eins verið dáinn," segir hann í viðtalinu sem  verður birt í heild á vef tímaritsins síðar í dag.

Elton John segir það ekki alltaf auðvelt að vera frægur enda laði frægð að sér brjálæðinga. „Díana prinsessa,  Gianni Versace, John Lennon, Michael Jackson, öll dáin. Tveir þeirra voru skotnir fyrir utan heimili sín. Ekkert af þessu hefði gerst ef þau hefði ekki verið fræg. Ég hafði aldrei haft lífvörð fyrr eftir andlát Gianni."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Býðst 62 milljarðar fyrir X Factor

Beyoncé Knowles í miklum ham.
Í gær, 22:58 Beyoncé Knowles hefur fengið freistandi tilboð frá Simon Cowell.  Meira »

Harry Potter fækkar fötum

Daniel Radcliffe er ekki spéhræddur maður.
Í gær, 22:20 Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem galdrapilturinn knái, Harry Potter, mun að öllum líkindum koma nakinn fram í næstu kvikmynd sinni sem er hryllingsmyndin „Kill your Darlings“. Þar mun hann fara með hlutverk ljóðskáldsins Allen Ginsberg. Meira »

Risakýr réðst á bónda

Kýr eru misjafnlega skapi farnar. Sumar eru blíðar og rólegar, öfugt við risakúna í Georgíuríki.
Í gær, 22:52 Bóndi í Georgíuríki í Bandaríkjunum komst í hann krappan þegar rúmlega 400 kílóa þung kýr stangaði hann.  Meira »

Gibb-bróðir á batavegi

Robin Gibb.
Í gær, 22:09 Robin Gibb, aðalsöngvari Bee Gees og einn Gibb-bræðranna lagvísu frá Ástralíu, segist hafa náð nánast fullum bata, en hann var illa haldinn af ristilkrabbameini. „Mér líður frábærlega,“ sagði hinn 62 ára gamli Gibb í viðtali á útvarpsstöð BBC. Meira »

finnur.is