Langar að kaupa Bítlahljóðver
Sir Andrew Lloyd Webber Reuters
Andrew Lloyd-Webber hefur „mikinn áhuga“ á að kaupa hið sögufræga hljóðver Abbey Road Studios. EMI-samsteypan hefur gefið til kynna að hljóðverið verði selt. Hljóðverið öðlaðist mikla frægð þegar Bítlarnir hljóðrituðu þar mörg af sínum þekktustu lögum.
Fréttavefur dagblaðsins Daily Telegraph hefur það eftir talsmanni söngleikjahöfundarins aðlaða, Lord Andrew Lloyd-Webber, að hann hafi „mikinn áhuga“ á að kaupa hljóðverið. Hann telji einnig „lífsnauðsynlegt“ að varðveita hljóðverið fyrir tónlistariðnaðinn.
Stutt er síðan EMI samsteypan tilkynnti að hún hygðist losa sig við Abbey Road hljóðverið því það fékki ekki að heildarrekstrinum. Bítlarnir gerðu hljóðverið frægt með því að hljóðrita þar og ekki síst því að nefna plötu eftir því.
Hljóðverið er hið elsta starfandi hljóðvera sem var sérstaklega smíðað sem hljóðver. Framtíð þess hefur verið óviss og sumir telja að á dögum stafrænnar tækni sé óþarfi að vera með slíka aðstöðu sérstaklega til hljóðritunar.
Lord Lloyd-Webber er þekktur fyrir söngleikjasmíð. Hann hljóðritaði fyrst sjálfur í Abbey Road hljóðverinu 1967 með félaga sínum Tim Rice. Síðan hefur hann hljóðritað þar flesta söngleiki sína, allt frá Jesus Christ Superstar og til nýjasta söngleiks síns Love Never Dies.
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen










