Kátir dvergar velkomnir

Dmitrí Medvedev í hópi hermanna í Krelm í gær. stækka

Dmitrí Medvedev í hópi hermanna í Krelm í gær. Reuters

Auglýsingaplaköt fyrir leiksýningu, sem á stóð: Við bíðum ykkar, kátu dvergar, voru tekin niður af veggjum í rússneskri borg skömmu áður en Dmitrí Medvedev, forseti Rússlands, kom þangað í heimsókn.

Rússneskir fjölmiðlar segja, að Medvedev sé 1,63 metrar á hæð.

Auglýsingarnar voru vegna barnaleikrits, sem verið er að sýna í borginni Omsk, en þær voru fjarlægðar af húsveggjum þar sem bílalest Medvedevs átti að fara framhjá þegar forsetinn heimsótti borgina 12. febrúar. Þetta er fullyrt á vefnum nr2.ru. 

Að sögn Reutersfréttastofunnar var mynd af barni í gervi dvergs á plakötunum.

Ýmislegt fleira var gert til að flikka upp á Omsk áður en Rússlandsforseti kom þangað í heimsókn, að sögn bloggara og blaðamanna. Meðal annars var hreinum snjó dreift yfir gamla skítuga snjóinn á þeim stöðum sem forsetinn heimsótti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is