Veröld/Fólk
| mbl
| 20.2.2010
| 6:50
Solla stirða fundin
Leitinni að Sollu stirðu er lokið. Hún fannst í Verslunarskóla Íslands, heitir Unnur Eggertsdóttir og er 17 ára. Áheyrnarprufur fóru fram um síðustu helgi og sóttu mörg hundruð stúlkur um að fá að klæðast kjólnum bleikröndótta.
Unnur er ekki alls óvön því að standa á sviði en hún kemur fram í Thriller, söngleik Verslunarskólans, sem er sýndur í Loftkastalanum.
Hin nýja Solla kemur síðan fram á Latabæjarhátíðinni í lok mars og á fleiri tilfallandi skemmtunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









