Er snjókast „alvarlegur ofbeldisglæpur“?

Lögreglumennirnir í Manchester líta snjókast alvarlegum augum. stækka

Lögreglumennirnir í Manchester líta snjókast alvarlegum augum. Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Peter Fahy lögregluforingi í Manchester á Englandi hefur sett ofan í við lögreglumenn sem hafa skilgreint snjókast sem „alvarlega ofbeldisglæpi“. Hann segir að lögreglumenn verði að beita almennri skynsemi í störfum sínum.

Í síðasta mánuði var lögð fram skýrsla þar sem fólk sem kastaði sex snjóboltum var talið hafa gerst sek um alvarlegan ofbeldisglæp. Slíkt orðalag er að jafnaði einvörðungu notað þegar um er að ræða morð, nauðgun eða þegar fólk verður fyrir líkamstjóni. Enginn meiddist í atvikinu og enginn var ákærður.

Fahy sagði að mistök hefðu átt sér stað, en sagði að um mætti kenna að lögreglumenn hans hefðu ruglast í skrifræði vegna óskýrra reglna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is