Veröld/Fólk
| mbl
| 22.2.2010
| 8:34
Hætt við sölu á Abbey Road
Bítlarnir ganga yfir gangbrautina framan við Abbey Road hljóðverið árið 1969. mbl.is
Hljóðverið heimsfræga kennt við Abbey Road í London er ekki til sölu. Fyrirtækið EMI, eigandi hljóðversins, gaf svohljóðandi yfirlýsingu frá sér í gær, að það yrði áfram í eigu þess.
Meðal þeirra sem lýst höfðu yfir áhuga á að kaupa hljóðverið var Andrew Loyd Webber tónskáld og Bítillinn Paul McCartney sagðist viljugur til að taka þátt í að bjarga því.
Þær fréttir bárust í liðinni viku að EMI hygðist selja það til að grynnka á skuldum en nú hefur það tekið þá ákvörðun að leita að fjárfestum til að taka þátt í rekstri hljóðversins en þónokkur halli mun hafa verið á honum hin seinustu ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









