Konur fá að þjóna í kafbátum

Bandarískur kafbátur á siglingu. stækka

Bandarískur kafbátur á siglingu.

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur ákveðið að konur fái að vera í áhöfnum kafbáta. Þingið í Washington hefur 30 daga frest til að samþykkja það eða hafna.

Robert Gates varnarmálaráðherra hefur formlega tilkynnt þinginu um ákvörðun sína. Hún er tekin eftir að yfirmaður bandaríska heraflans, George Casey hershöfðingi, hafði lagt blessun sína yfir áform ráðuneytisins.

Casey svaraði fyrirspurnum þingnefndar í gær þann veg, að tími væri til kominn að endurskoða reglur er takmörkuðu hlutverk kvenna eða útilokuðu þær frá framlínusveitum bandaríska heraflans.

Af mannafla bandaríska flotans eru 15% hans konur. Þær hafa starfað við hlið karlmanna í flugvélum flotans og á öðrum herskipum en kafbátum frá 1993.

Talið er að ár muni líða a.m.k. áður en fyrstu konurnar fara um borð í kafbáta sem skipverjar. Bæði þurfi þær að undirgangast sérstaka þjálfun áður og ennfremur verði að breyta vistarverum til að skilja kynin að neðansjávar.

Bandarískur kjarnorkukafbátur.

Bandarískur kjarnorkukafbátur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent — Fleiri fréttir

Árásir í sólarupprás í Homs

Frá Sýrlandi
08:44 Stjórnarherinn í Sýrlandi hélt áfram árásum sínum á borgina Homs í morgun. Sýrlensk stjórnvöld hafa hafnað tillögu Arababandalagsins um að senda friðarsveitir til landsins. Meira »

Skortur á menntuðum kennurum í ESB

Við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
07:07 Ríki Evrópusambandsins eru farin að finna fyrir skorti á menntuðum kennurum í vaxandi mæli samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Fram kemur að staðan í þeim efnum fari stöðugt versnandi og að framkvæmdastjórn sambandsins hafi séð ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á þessum vanda. Meira »

Átök í Aþenu myndskeið

Niðurskurður samþykktur á sama tíma og Aþena brennur
08:37 Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Aþenu í nótt eftir að gríska þingið samþykkti niðurskurðaráætlanir stjórnvalda. Víða var kveikt í byggingum í Aþenu og brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Meira »

Hættur vegna eyðslu ríkisins

Frá Kúveit-borg.
06:41 Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarin aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP. Meira »

finnur.is