Sambíóin í Egilshöll

Skrifað undir samninginn um síðustu helgi stækka

Skrifað undir samninginn um síðustu helgi

Sambíóin/Kringlubíó og Kvikmyndahöllin ehf. hafa skrifað undir samning til 30 ára um leigu á húsnæði undir kvikmyndahús í Egilshöll.  Í leigusamningnum felst að Kvikmyndahöllin lýkur við byggingu kvikmyndahússins sem staðið hefur hálfklárað frá haustinu 2008. Sambíóin hafa á móti skuldbundið sig til að hefja rekstur fjögurra sala kvikmyndahúss eigi síðar en í desember 2010.

Kvikmyndahöllin ehf. er félag í eigu Regins ehf., dótturfélags Landsbankans. Félagið var stofnað til að annast uppbyggingu og eignarhald á kvikmyndahúsinu. Auk kvikmyndahússins í Egilshöll mun Reginn eignast öll mannvirki og starfsemi sem undir Egilshöll heyrir. Vonir standa til að hægt verði að setja fasteignir og allan rekstur í sölu í byrjun árs 2011. 

Fram kemur í tilkynningu, að bíóið í Egilshöll verði með fjórum sölum sem allir verði búnir fyrsta flokks aðstöðu. Bíósalir verða á annarri hæð hússins, á jarðhæð verður miða- og sælgætissala. Nýtt anddyri að Egilshöll verður sameiginlegt með annarri starfsemi hússins.

Samhliða framkvæmdum við bíóhús verður lokið við lóðaframkvæmdir umhverfis húsið sem og að fullgera bílastæði.

Sambíóin í Egilshöll verður meðal fyrstu kvikmyndahúsa í Evrópu þar sem allir salir eru búnir  Digital 3D tækni og margar aðrar nýungar verða kynntar þegar kvikmyndahúsið verður opnað í haust, að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
12:07 Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

í gær Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

finnur.is