Eddan „okkar“ í Þjóðminjasafni

Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tók við Eddunni fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Björn Brynjúlfur Björnsson formaður ÍKSA ... stækka

Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tók við Eddunni fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Björn Brynjúlfur Björnsson formaður ÍKSA afhenti styttuna. eddan.is

Íslenska þjóðin hlaut heiðursverðlaun íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2010 við afhendingu Edduverðlaunanna laugardaginn 27. febrúar s.l. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tók í dag við styttunni sem verður höfð til sýnis í anddyri Þjóðminjasafns Íslands.

„okkar“

Verðlaunahafar – Íslendingar allir – geta komið í Þjóðminjasafnið skoðað styttuna og tekið myndir af sér með gripinn, samkvæmt tilkynningu frá safninu.

Verðlaunin eru veitt með kæru þakklæti fyrir dyggan stuðning við íslenskan kvikmynda- og sjónvarpsiðnað í gegnum tíðina. Heiðursskjal er hægt að nálgast á heimasíðu Eddunnar eða í anddyri Þjóðminjasafnsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is