Eyddu brúðkaupsnóttinni í steininum

stækka

mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Bandarísk brúðhjón eyddu brúðkaupsnóttinni hvort í sínum fangaklefa eftir að brúðurin réðist á fyrrum ástkonu brúðgumans eftir brúðkaupið.

Brúðurin, sem heitir Marissa Ann Putignano-Keene, 22 ára, hefur verið ákærð fyrir árás með banvænu vopni, bíl, en hún mun hafa reynt að aka yfir konuna og son hennar á bílastæði í bænum Barnstable á Þorskhöfða að sögn blaðsins  Cape Cod Time. Engan sakaði þó.

Fjallað er um málið á fréttavef BBC. Þar kemur fram, að ástkonan fyrrverandi sagðist hafa verið á leið heim eftir vinnu og stytt sér leið yfir bílastæðið þegar brúðhjónin óku framhjá. Brúðurin hafi skrúfað niður bílrúðuna og hrópað dónaleg móðgunaryrði að henni en síðan gefið í og ekið ógnandi að henni.

Brúðguminn, Timothy Keene, 37 ára sem sat í farþegasætinu, var einnig ákærður fyrir óspektir og úrskurðaður í varðhald.  Brúðhjónin munu hafa viðurkennt fyrir lögreglu, að þau hefðu áður drukkið saman úr kampavínsflösku í brúðkaupsveislunni í ráðhúsi bæjarins.

Þeim var sleppt úr haldi í gær eftir að hafa eytt nóttinni í fangageymslu Barnstablefangelsis.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is