Holur til sölu

Það má velta því fyrir sér hvort selja eigi holur í íslenskum þjóðvegum í ljósi ... stækka

Það má velta því fyrir sér hvort selja eigi holur í íslenskum þjóðvegum í ljósi efnahagsástandsins mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Sveitarfélög grípa til ýmissa ráða þegar þau standa illa fjárhagslega. Til að mynda ætlar þorpið Niederzimmern í austurhluta Þýskalands að bjóða holur á vegum sveitarfélagsins til sölu. Verður ágóðinn nýttur til að gera við holótta vegi.

Að sögn Christoph Schmidt-Rose, bæjarstjóra í Niederzimmern kostar hver hola 50 evrur, 8.700 krónur. Gegn greiðslu þá munu yfirvöld gera við holuna. Hann segir að hugmyndin hafi vakið mikla athygli fjölmiðla en sérfræðingar telja að um 40% þjóðvega í Þýskalandi hafi skemmst í vetur en veturinn hefur verið afar slæmur þar í landi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is