Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| Morgunblaðið
| 5.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:24
Halda banni við tyggjói
Stjórn Singapúrs kvaðst í gær ætla að halda til streitu átján ára banni við innflutningi og sölu á tyggigúmmíi.
„Stjórnin stendur við þá ákvörðun sína að banna tyggigúmmí,“ sagði aðstoðarráðherrann Maliki Osman á þinginu. „Tyggigúmmí hefur ekki verið verulegt vandamál frá því að bannið var sett. Menn hafa miklar áhyggur af því að afnám bannsins myndi leiða til þess að tyggigúmmíi yrði kastað á víð og dreif og það myndi grafa undan baráttu okkar gegn sóðaskap.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








