Þurftu að klæða snjókonuna í föt

Fjölskylda í New Jersey í Bandaríkjunum eyddi mörgum klukkustundum í að búa til líkneski af Venus frá Milo úr snjó í garðinum framan við hús sitt. Nokkrum dögum síðar bankaði lögreglan á dyr og krafðist þess að snjókellingin yrði klædd í föt þar sem hún særði blygðunarkennd nágranna.

Elisa Gonzalez mótaði styttuna úr snjó framan við hús sitt í Rahway og segir að listaverkið hafi strax slegið í gegn.

„Það var mjög fallegt. Við vöktum mikla athygli nágrannanna og sumir komu og tóku myndir og töluðu við okkur," segir hún við AFP fréttastofuna.

En snjóverkið fór greinilega fyrir brjóstið á einum nágrannanum. „Við fengum heimsókn frá lögreglumanni, sem sagði að nágranni hefði kvartað.  Lögreglumaðurinn sagði að annað hvort yrðum við að brjóta styttuna niður eða klæða hana í föt," segir Gonzalez. „Við vildum ekki valda vandræðum svo við huldum hana."

Styttan af Venusi frá Milo er í Louvre safninu í París. Það verk sýnir einnig nakta konu og handleggirnir hafa brotnað af styttunni en höfuðið er á sínum stað. 

Frétt BBC um málið

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is