Laganemar kepptu í málflutningi

Málflutningskeppnin fór fram í Hæstarétti Íslands. stækka

Málflutningskeppnin fór fram í Hæstarétti Íslands. Morgunblaðið/Kristinn

Laganemar Háskóla Íslands öttu kappi á fjölum Hæstaréttar í dag þegar málflutningskeppni Orators, félags laganema í HÍ, fór fram. Tvö lið reyndu fyrir sér og var dómurinn m.a. skipaður hæstaréttardómara og tveimur kennurum lagadeildar. Um var að ræða hitamál, nefnilega meiðyrðamál á hendur blaðamanni.

Í kynningu á keppninni sagði að þar myndu lögfræðingar framtíðarinnar stíga sín fyrstu spor í málflutningi, og því mætti enginn missa af. Það hafði sitt að segja enda mættu mun fleiri en búist var við.

Keppnin fór þannig fram að fyrir hádegi sótti annað liðið en hitt varðist. Hlutverkum var svo snúið við eftir hádegi. Huglægt mat dómara réði svo hvort liðið stóð uppi sem sigurvegari. Skemmst er frá því að segja að málflutningsmaður Orator var valinn Gunnlaugur Helgason, en hann fór fyrir liði II. Þrátt fyrir góðan málflutning Gunnlaugs fór lið I hins vegar með sigur af hólmi.

Í sigurliðinu voru Friðrik Árni Friðriksson, Guðný Hjaltadóttir, Guðrún Edda Finnbogadóttir, Gunnar Jónsson og Vilhjálmur Þór Svansson. Lið II var hins vegar skipað, auk Gunnlaugs, Hilmari Þorsteinssyni Ólafi Agli Jónssyni og William Frey Huntingdon-Williams.

Í dóminum voru Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari, Helgi I. Jónsson og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjórar, auk tveggja kennara lagadeildar, þeirra Eiríks Jónssonar og Kristínar Benediktsdóttur.

Huglægt mat dómara réð úrslitum.

Huglægt mat dómara réð úrslitum. Morgunblaðið/Kristinn

PDF-skrá Verkefni laganema
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is