Snyrti sig undir stýri og ók á

Bandarískur þjóðvegur. stækka

Bandarískur þjóðvegur. BILL AUTH

Lögreglumenn ætluðu ekki að trúa eigin augum né eyrum þegar þeir komu að árekstri tveggja bíla sl. fimmtudag á þjóðvegi nærri Key West í Flórída. Undir stýri sat nefnilega 37 ára kona sem ákvað að snyrta „bikiní svæðið“ á miðri leið en fyrrverandi eiginmaður hennar hélt um stýrið úr farþegasætinu.

Konan var á leið að hitta núverandi kærasta sinn og gaf lögreglumönnum þær skýringar, að hún vildi vera tilbúin fyrir fund þeirra.

Þar með var ekki öll sagan sögð því hvorki konan né bíllinn áttu að vera á ferðalagi. Konan hafði deginum áður verið dæmd fyrir að aka undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda. Hún var svipt ökuréttindum í fimm ár til viðbótar við fyrri sviptingu auk þess sem henni var skipað að skila bíl sínum til lögreglu til geymslu.

Það vildi til happs að þau óku aftan á stóran pallbíl. Ökumaður hans og farþegi hlutu minniháttar meiðsli, en hefðu eflaust slasast mun meira hefði bifreiðin verið minni.

Konan á yfir höfði sér árs fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is