Bigelow stjarna kvöldsins
Leikstjórinn Kathryn Bigelow kom sá og sigraði með kvikmynd sína The Hurt Locker á Óskarsverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Fékk myndin sex Óskarsverðlaun og varð Bigelow fyrst kvenna til að fá Óskarsverðlaun fyrir leikstjórn. Myndin var einnig valin besta myndin.
„Þetta er stund lífs míns," sagði Bigelow, á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt en hún er fimmta konan í sögu hátíðarinnar, sem haldin varí 82. skiptið nú, sem er tilnefnd fyrir kvikmynd sem hún hefur leikstýrt.
Jeff Bridges og Sandra Bullock fengu verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sín í myndunum Crazy Heart og The Blind Side.
Christoph Waltz fékk Óskarsverðlaunin fyrir leik í aukahlutverki í myndinni Inglourious Basterds og Mo'Nique fyrir leik í myndinni Precious.
Argentínska kvikmyndin El Secreto de Sus Ojos var valin besta erlenda myndin.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









