Kjarnorkubyrgi selt á eBay
Breskt kjarnorkubyrgi frá tímum kalda stríðsins seldist á uppboðsvefnum eBay fyrir yfir 20 þúsund bresk pund, jafnvirði 3,9 milljóna króna. Viðmiðunarverðið var 500 pund en yfir 40 boð bárust í byrgið og því hækkaði verðið hratt.
Byrgið er í Peak District í Derbyshire. Það var tekið í notkun árið 1959 og aðallega notað af heimavarnarsveitum, sem höfðu það hlutverk að tilkynna um hugsanlegar kjarnorkuárásir og afleiðingar þeirra.
Að sögn seljandans er byrgið á útsýnisstað í Peak District. Það er 4,5 metra undir yfirborðinu með eitt herbergi og salernisaðstöðu og tvo loftræstistokka.
„Sjaldgæft tækifæri til að kaupa hluta af sögu kalda stríðsins," skrifaði seljandinn. „Einkakjarnorkubyrgi með landskika og upprunalegum búnaði."
Auk húsgagna fylgir með í kaupunum sírena, blikkfata, dollur og reipi til að draga þunga hluti upp um opið á byrginu.








