Lil Wayne í fangelsi
Bandaríski rapparinn Lil Wayne var leiddur út úr réttarsal í New York í handjárnum eftir að hafa verið dæmdur í árs fangelsi fyrir brot á vopnalögum en hann var með byssu í fórum sínum.
Rapparinn, sem fékk fern Grammy-verðlaun á síðasta ári og hefur selt plötur í bílförnum, þarf að afplána dóminn í Rikers Island fangelsinu en fær að dvelja á varðhaldsganginum og þarf ekki að umgangast harðsvíraða glæpamenn.
Lil Wayne, sem er 27 ára og heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., játaði í október að hafa verið með skammbyssu í fórum sínum án leyfis. Byssan fannst í rútu, em hann notaði á tónleikaferð.
Til stóð að dómur yrði kveðinn upp í síðustu viku en réttarhaldinu var frestað vegna þess að eldur kom upp í dómhúsinu. Rapparinn notaði tækifærið og sletti úr klaufunum og lét einnig gera aðgerð á demantskreyttum tönnum sínum.
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









