Veröld/Fólk
| BANG ShowBiz
| 9.3.2010
| 9:45
Alveg til í barneignir
Tónlistardómarinn Simon Cowell er alveg til í að eignast börn en veit ekki hvort hann sé að verða of gamall fyrir slíkt. Kappinn varð fimmtugur á síðasta ári. Cowell trúlofaðist unnustu sinni, Mezghan Hussainy, nýverið og er farið að styttast í brúðkaupið.
Eitthvað er á reiki hvort þau hafi sett upp hringa og hefur umboðsmaður Cowell neitað að staðfesta það. Cowell sagði hins vegar í þætti Jay Leno að það væri kona í lífi hans og að hann hafi tekið þá ákvörðun að gleða einhvern í ár. Hann neitaði hins vegar að lýsa því hvernig hann bað um hönd Hussainy.
Cowell segir að sögusagnir um brúðkaup í sumar séu rangar en það muni fara fram innan tíu ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









