Eiginmanni Karólínu prinsessu gert að greiða sekt

Gögn málsins stækka

Gögn málsins Reuters

Eiginmaður Karólínu prinsessu af Mónakó, prins Ernst August af Hannover, var í dag dæmdur til þess að greiða hótelstjóra 200 þúsund evrur, tæpar 35 milljónir króna, í miskabætur fyrir líkamsárás. Féll dómurinn í Þýskalandi árásin átti sér stað í Kenýa árið 2000.

Þegar fyrst var dæmt í málinu árið 2004 var prinsinn, sem er 56 ára að aldri, dæmdur til að greiða 440 þúsund evrur í miskabætur. Samþykkt var að taka málið upp aftur á síðasta ári en Karólína kom fyrir dómara um miðjan janúar þar sem hún studdi frásögn hans af atvikinu á sínum tíma. Fór verjandi prinsins fram á að hann yrði sýknaður.

Prinsinn, sem er 55 ára, er fjarskyldur ættingi Elísabet Bretadrottningar og langafasonur þýska keisarans Wilhems II.

Sagði Ernst August við réttarhöldin nú að hann hefði slegið hótelstjórann, Josef Brunlehner, í tvígang utan undir. Um táknræn högg hafi verið að ræða þar sem hann vildi leggja fram kvörtun vegna hávaða og ljósasýningar frá diskóteki á hótelinu. „Eitt  fyrir tónlista og annað fyrir ljósin," sagði hann við réttarhöldin.

Hann þvertók fyrir að hafa barið Brunlehner ítrekað og að hann hafi verið ofurölvi líkt og haldið var fram.

Sagði dómarinn við uppkvaðninguna í dag að ekki hafi verið hægt að leggja mat á hvor útgáfan af barsmíðunum væri rétt.

Prinsinn hefur ítrekað komist í kast við lögin vegna ofbeldis og ofdrykkju.

Ernst August er þriðji eiginmaður Karólínu. Þau gengu í hjónaband árið 1999 og eiga saman dótturina Alexöndru.

Karólína prinsessa af Mónakó bar vitni í málinu í janúar

Karólína prinsessa af Mónakó bar vitni í málinu í janúar Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Glímdi við búlimíu

Lady Gaga.
11:00 Lady Gaga átti við áströskunarsjúkdóm að stríða á unglingsárunum.  Meira »

Syrgir enn Heath Ledger

Michelle Williams.
10:24 Michelle Williams hefur enn ekki jafnað sig á dauða barnsföður síns.  Meira »

Sorg í bland við gleði á Grammy-verðlaunum

Jennifer Hudson söng I Will Always Love You.
10:58 Stemningin á Grammy-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi einkenndist af gleði í bland við sorg. Ákaft var fagnað þegar tilkynnt var um sigurvegara en þess á milli varð andrúmsloftið öllu alvarlegra þegar söngkonunnar Whitney Houston, sem lést á laugardaginn, var minnst. Meira »

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

finnur.is