Hlaut styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen

Valgarð Briem, stofnandi minningarsjóðsins, Hulda Jónsdóttir, styrkþegi og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri. stækka

Valgarð Briem, stofnandi minningarsjóðsins, Hulda Jónsdóttir, styrkþegi og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri afhenti Huldu Jónsdóttur, fiðluleikara, styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra í Höfða í dag. 

Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Þetta er í tuttugasta og fjórða sinn sem veitt er úr sjóðnum og hafa styrkþegar bæði verið félagasamtök og einstaklingar sem hafa starfað að mannúðar-, heilbrigðis- og menningarmálum, samkvæmt fréttatilkynningu.
 
Hulda Jónsdóttir er á 19 aldursári og stundar nám við Juilliard-tónlistarskólann í New York og  hlýtur styrk úr sjóðnum til frekara framhaldsnáms í fiðluleik við tónlistarskólann.
 
Hulda hefur komið fram á tónleikum með virtum tónlistarmönnum bæði hérlendis og erlendis og hlotið fjölda viðurkenninga m.a. verðlaun í einleikarakeppni á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskólans árið 2008. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Glímdi við búlimíu

Lady Gaga.
11:00 Lady Gaga átti við áströskunarsjúkdóm að stríða á unglingsárunum.  Meira »

Syrgir enn Heath Ledger

Michelle Williams.
10:24 Michelle Williams hefur enn ekki jafnað sig á dauða barnsföður síns.  Meira »

Sorg í bland við gleði á Grammy-verðlaunum

Jennifer Hudson söng I Will Always Love You.
10:58 Stemningin á Grammy-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi einkenndist af gleði í bland við sorg. Ákaft var fagnað þegar tilkynnt var um sigurvegara en þess á milli varð andrúmsloftið öllu alvarlegra þegar söngkonunnar Whitney Houston, sem lést á laugardaginn, var minnst. Meira »

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

finnur.is