Höfðu litla trú á Tom Jones

Tom Jones hefur selt milljónir platna, en vann áður fyrir sér við verksmiðjustörf.

Tom Jones hefur selt milljónir platna, en vann áður fyrir sér við verksmiðjustörf. Reuters

Minnisblöð sem starfsmenn vinnumiðlunar í Wales skrifaðu fyrir um hálfir öld sýna að þeir töldu ekki miklar líkur á að Tom Jones næði miklum frama á tónlistarsviðinu. Starfmennirnir lögðu skv. minnisblöðunum til að Jones yrði fundið starf sem óhreinkaði ekki neglur hans, og gefa í skyn að hann hafi ekki mikinn áhuga á því að vinna heiðarlega vinnu.

Jones, sem fyrir löngu er orðinn heimsþekktur söngvari og hefur selt milljónir platna, vann verksmiðjustörf í byrjun sjöunda áratugarins, á sama tíma og hann reyndi fyrir sér sem söngvari með hljómsveit sinni.

Starfsmenn vinnumiðlunarinnar töldu hins vegar augljóslega að tónlistarást Jones kæmi í veg fyrir að hann fyndi sér alvöru starf. „Svo virðist sem áhugamál hr. Woodward [eins og Jones hét þá] gefi nokkuð vel af sér sem letur hann frá því að finna sér öruggt starf. Skoðið og leggið til eins fljótt og auðið er eitthvað sem mun ekki óhreinka neglur hans!" skrifuðu þeir í desember 1963.

Minnisblöðin verða boðin upp af uppboðshaldaranum Mullock's í Englandi eftir rúman mánuð. Búist er við að þau verði slegin fyrir þúsundir punda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is