Innkaupastjóri „hins ástkæra leiðtoga" segir frá
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, í Pyongyang á síðasta ári. Reuters
Fyrrverandi yfirmaður í norður-kóreska hernum hefur nú sent frá sér bók þar sem hann segist hafa gegnt því hlutverki í tvo áratugi, að vera einskonar innkaupastjóri einræðisherra Norður-Kóreu og flutt inn munaðarvörur sem ekki eru fáanlegar í landinu.
Höfuðsmaðurinn, sem heitir Kim Jong-ryul, flúði land árið 1994 og settist að í Austurríki þar sem hann býr undir dulnefni. Hann segist í bókinni, sem nefnist Í þjónustu einræðisherrans, hafa farið reglulega til Evrópu á vegum einræðisherrafjölskyldunnar í Norður-Kóreu og keypt inn fyrir hana.
Á fréttavef BBC er haft eftir höfuðsmanninum, að hann hafi oftast farið til Vínarborgar þar sem hægt var að kaupa flest það sem leiðtogarnir girntust. Hann segist hafa keypt allt milli himins og jarðar, allt frá njósnatækjum og vopnum til lúxusvara á borð við teppi og flutt þessar vörur til Norður-Kóreu þrátt fyrir ýmsar viðskiptaþvinganir, sem Norður-Kóreumenn hafa verið beittir.
BBC segir að í bókinni sé lýst þeirri gjá, sem sé milli lifnaðarhátta æðstu stjórnenda Norður-Kóreu og almennings í landinu, sem býr við mikla fátækt. Sjálfur segist Kim Jong-ryul hafa fengið nóg af þessu óréttæti og ákveðið að setja dauða sinn á svið árið 1994 og flýja til Austurríkis.
Hann segist hætta lífi sínu með því að fjalla um það opinberlega og óttist að leyniþjónustan í Norður-Kóreu muni nú leita hann uppi og beita fjölskyldu hans í Norður-Kóreu harðræði. Hann segist hins vegar ekki sjá eftir þeirri ákvörðun að rjúfa þögn sína.
Núverandi leiðtogi Norður-Kóreu er Kim Jong-il, sem kallaður er „hinn ástkæri leiðtogi" af löndum sínum. Hann tók við af föður sínum, Kim Il-sung, sem stofnaði norður-kóreska ríkið en hann lést árið 1994.









