Játaði að hafa reynt að kúga Letterman
Fyrrum sjónvarpsþáttaframleiðandi játaði fyrir rétti í New York í kvöld að hafa reynt að kúga 2 milljónir dala út úr sjónvarpsmanninum David Letterman með því að hóta að gefa opinberar upplýsingar um ástarævintýri, sem Letterman átti með konum sem störfuðu fyrir hann.
Málið komst upp á síðasta ári þegar Letterman upplýsti í skemmtiþætti sínum á CBS sjónvarpsstöðinni, að hann hefði átt vingott við konur, sem unnu hjá honum við gerð þáttarins og að reynt hefði verið að kúga út úr honum fé. Hefði hann farið til lögreglunnar og kært málið.
Robert Halderman, 52 ára, sem starfaði sem framleiðandi hjá sjónvarpsþættinum 60 Minutes þegar þetta gerðist, var handtekinn og ákærður fyrir fjárkúgun. Hafði hann hótað að gera opinberar upplýsingar, sem hann fann í dagbók einnar konunnar, sem Letterman hafði átt vingott við.
Halderman neitaði lengi vel sök en hefur nú gert samkomulag við saksóknara. Hann játar sök og fellst á að sæta hálfs árs fangelsisvist og 1000 stunda samfélagsþjónustu. Hann átti yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsisdóm ella. Að sögn lögmanns Haldermans öfundaði hann Letterman af velgengni hans og átti að auki í fjárhagserfiðleikum.
Letterman þarf heldur ekki að bera vitni í réttarhöldunum og upplýsa nánar um einkalíf sitt.
Letterman kvæntist Reginu Lasko á síðasta ári. Þau hafa verið saman frá árinu 1986 og eiga 6 ára gamlan son.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









