Mesta áhorf á Óskarinn í 5 ár
Óskarsverðlaunaafhendingin á sunnudag var sú vinsælasta í Bandaríkjunum í 5 ár ef marka má fyrstu áhorfstölur. Talið er að um 41,3 milljónir manna hafi fylgst með þegar kvikmyndin The Hurt Locker fékk sex verðlaun, þar á meðal sem besta myndin.
Áhorfið er því 14% meira en í fyrra en þá fylgdust 36,3 milljónir manna með þegar Slumdog Millionaire rakaði inn verðlaunum. Rétt eins og í kvikmyndahúsunum hafa stjörnum prýddar Hollywood myndir lengi náð að trekkja að fleiri áhorfendur á Óskarsverðlaununum en sjálfstæðar kvikmyndir gera. Talið er líklegt að fjölgun tilnefninga til bestu myndar, þar á meðal vinsælla mynda eins og tölvugerðu myndanna Up og Avatar, hafi aukið áhorfið í ár.
80. Óskarsverðlaunaathöfnin sem haldin var árið 2008, þar sem evrópskir leikarar og kvikmyndir sem skoruðu lágt á vinsældalistum voru mjög áberandi, fór í sögubækurnar fyrir minnsta áhorf allra tíma. Þá fyldust aðeins 32 milljónir Bandaríkjamanna með athöfninni þegar No Country for Old Men var stærsti sigurvegarinn.
Sú Óskarsverðlaunaathöfn sem á metið fyrir mest áhorf var hinsvegar árið 1998, þegar 55 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á kvikmyndina Titanic hirða metfjölda verðlauna, 11 talsins.
Þess má geta í samanburði að í síðasta mánuði horfðu 106,5 milljónir Bandaríkjamanna á Superbowl, úrslit ameríska fótboltans, og var þá slegið áhorfsmet frá árinu 1983 þegar lokaþáttur gamanseríunnar M*A*S*H var sýndur.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









