Pink Floyd stefnir plötufyrirtækinu EMI

Pink Floyd árið 1967 utan við byggingu EMI í Lundúnum: Roger Waters, Nick Mason, Syd ... stækka

Pink Floyd árið 1967 utan við byggingu EMI í Lundúnum: Roger Waters, Nick Mason, Syd Barrett og Richard Wright. AP

Réttarhöld hófust í  London í dag vegna kæru rokkhljómsveitarinnar goðsagnakenndu Pink Floyd á hendur plötufyrirtækinu EMI. Málið snýst um greiðslur fyrir sölu á tónverkum rokkaranna á netinu.

Pink Floyd skrifaði undir útgáfusamning við EMI árið 1967 og í kjölfarið voru gefnar út plötur eins og Dark Side of the Moon, sem er ein af söluhæstu plötum allra tíma. Lögmaður hljómsveitarinnar, Robert Howe, sagði fyrir rétti í dag að deilan snerist m.a. um það hvort EMI hefði rétt á því að selja stök lög á netinu án þess að það sé gert hinu upprunalega samhengi platnanna.

Pink Floyd liðar segja þetta stríða gegn samningi þeirra við útgáfufyrirtækið en talsmenn EMI halda því fram að ákvæðið í samningnum eigi ekki við um sölu á netinu. Líklegt er talið að máli muni teygjast á langinn.

Hjómsveitin Pink Floyd öðlaðist heimsfrægð með framsækinni rokktónlist á sjöunda og áttunda áratugnum. Vinsældir hennar náðu hámarki við útgáfu Darkd Side of the Moon árið 1973 en í kjölfarið fylgdu hinar víðfrægu Wish You Were Here, Animals og loks The Wall árið 1979.

Pink Floyd kom saman að nýju á Live 8 tónleikunum í Hyde Park í London árið 2005. Richard Wright, hljómborðsleikari, lést árið 2008.

Meðlimir Pink Floyd, þeir Dave Gilmour, Roger Waters, Nick Mason og Rick Wright á Live ...

Meðlimir Pink Floyd, þeir Dave Gilmour, Roger Waters, Nick Mason og Rick Wright á Live 8 tónleikunum 2. júlí 2005. STEPHEN HIRD

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is