Tveggja ára fangelsi fyrir fjárkúgun

Rande Gerber og Cindy Crawford stækka

Rande Gerber og Cindy Crawford Reuters

Þýskur karlmaður sem reyndi að kúga fé út úr fyrirsætunni Cindy Crawford og eiginmanni hennar var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hótaði hann að selja fjölmiðlum mynd af sjö ára gamalli dóttur þeirra þar sem hún er bundin og kefluð. Myndina tók fyrrverandi barnfóstra þeirra hjóna í löggu- og bófaleik, að sögn dótturinnar Kaiu.

Maðurinn, Edis Kayalar, 26 ára, krafði Crawford um 100 þúsund dali, 12,8 milljónir króna. Kayalarer er vinur barnfóstrunnar og  stal ljósmyndinni af henni. Hann taldi sig geta fengið hálfa milljón dala fyrir myndina hjá slúðurblöðum og hótaði því að selja myndina slíku blaði ef Crawford og eiginmaður hennar, Rande Gerber, myndu ekki greiða honum féð.

Þau greiddu honum 1 þúsund dali í júlí í fyrra og fengu myndina afhenta. Tveimur dögum síðar hafði hann aftur samband og heimtaði meiri peninga fyrir afrit af myndinni.  Í kjölfarið höfðu þau samband við lögreglu og í nóvember gaf Kayalar sig fram við lögreglu í Þýskalandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is