Flestir landsmenn elska að fara í bíó og lesa bækur

Íslendingar eru bókhneigð þjóð stækka

Íslendingar eru bókhneigð þjóð Þorvaldur Örn Kristmundsson

Um 76% svarenda í könnun á menningarneyslu Íslendinga höfðu sótt bíóhús og 82% lesið bók sér til ánægju. Þessar niðurstöður voru kynntar í gær. Könnunina gerði Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið síðastliðið haust. 1.200 Íslendingar lentu í úrtakinu og voru spurðir um þátttöku í menningarviðburðum síðustu 12 mánuði.

Í könnuninni var spurt nokkurra spurninga um notkun á fjölmiðlum. Fyrst var spurt hvers konar efni viðkomandi sæktist helst eftir í fjölmiðlum. Flestir nefndu fleira en eina tegund efnis. Nær allir þátttakenda, eða 93%, sækjast eftir fréttum og veðri í fjölmiðlum (93%). Mjög stór hópur sækist sömuleiðis eftir fræðsluefni (88%) og afþreyingu og skemmtun (87%).

Þá nefndu sömuleiðis margir samfélagsmálefni og stjórnmál sem efni sem þeir sæktust eftir (63%) og yfir helmingur tilgreindi menningu og listir (57%) og tónlist (55%). Um 45% sögðust sækjast eftir umfjöllun um íþróttir í fjölmiðlum.

Sjá skýrsluna hér

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is