Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 10.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:56
Hvað er merkilegt við Hemingway?
Ernest Hemingway. mbl.is
Hvað er svona merkilegt við Hemingway? er titill á námskeiði Ástráðs Eysteinssonar prófessors sem hann heldur hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Á námskeiðinu fjallar Ástráður um ritverk bandaríska nóbelshöfundarins Ernests Hemingways og víkur einnig að ímynd hans sem rithöfundar og ævintýramanns, en á námskeiðinu verður gætt að stríðinu, útlegðinni, ástinni og samskiptum kynjanna í verkum höfundarins og spurt hver séu einkenni hins fræga „harðsoðna stíls“ hans.
Námskeiðið hefst kl. 20:15 á fimmtudaginn og verður haldið á fimmtudögum næstu þrjár vikurnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









