Kemur ekki nálægt leikkonum

Jeff Bridges ásamt eiginkonunni, Susan Geston á Óskarsverðlaunahátíðinni. stækka

Jeff Bridges ásamt eiginkonunni, Susan Geston á Óskarsverðlaunahátíðinni. Reuters

Óskarsverðlaunahafinn Jeff Bridges segir að það myndi aldrei hvarfla að honum að eiga í ástarsambandi með leikkonu sem er kannski eins gott fyrir hann þar sem hann er kvæntur.

Bridges, sem er sextugur að aldri, hefur verið kvæntur Susan Geston í 33 ár en þau kynntust á búgarði þar sem Bridges var við tökur en hún starfaði sem þjónustustúlka á búgarðinum.

Bridges segir að hann muni aldrei láta freistast og halda framhjá konu sinni. „Þú vilt ekki eiga í kynferðislegu sambandi við annan leikara. Það þýðir bara vandræði. Fjölskylda mín var og er of dýrmæt í mínum huga. Ég veit að kynlíf getur kostað þig allt," segir Bridges.

Hann segir að ástríðan hafi ekki kulnað á þessum áratugum og ef eitthvað er þá fari sambandið bara batnandi. „Ég er svo ástfanginn af henni. Sambandið verður bara betra, nánara, meira æsandi og allt það. Kona mín styður mig og það gerir það að verkum að ég elska hana enn meira."

Hann viðurkennir hins vegar að hafa verið heldur villtari á sínum yngri árum.
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is