Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 10.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:59
Var við dauðans dyr
Tónlistarmaðurinn Robbie Williams var við dauðans dyr fyrir þremur árum að eigin sögn. Hann segir að fíkniefnaneysla sín hafi verið komin á það hátt stig að hann hafi verið nærri því að deyja árið 2007.
„Ég var ekki á góðum stað, ég var að deyja. Ég komst á stað þar sem mér var í alvörunni alveg sama. Ég var orðinn feitur og þunglyndur áður, en svo bættist ofan á það hugsun um að ég gæti dáið þá og þegar og mér fannst það bara svalt,“ segir Williams.
Williams, 36 ára, segir að fíkniefnaneysla hans hafi byrjað 1993 þegar hann tók í fyrsta skipti kókaín sem ónefnd 80's poppstjarna gaf honum.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









