Kærður fyrir hvala-sushi

Hvalkjöt. stækka

Hvalkjöt. Eggert Jóhannesson

Veitingamaður í Santa Monica í Kalíforníu á yfir höfði sér ákæru fyrir að bjóða upp á sushi úr hvalkjöti en hvalkjöt er á bannlista í Bandaríkjunum. 

Veitingahúsið Hump og Kiyoshiro Yamamoto, matreiðslumaður, eru sökuð um að hafa selt sandreyðarkjöt. Á Yamamoto yfir höfði sér allt að árs fangelsi og allt að 100 þúsund dala sekt og veitingahúsið gæti þurft að greiða 200 þúsund dala sekt. 

Í yfirlýsingu frá skrifstofu saksóknaraembættisins í Santa Monica segir, að sandreyður sé skráð sem dýrategund í útrýmingarhættu og því sé sala á kjötinu alfarið bönnuð í Bandaríkjunum. 

Saksóknarar segja, að húsleit í The Hump í síðustu viku hafi leitt í ljós  að veitingahúsið hafi selt hvalkjöt í að minnsta kosti þrjú skipti. Ekkert var reynt að fela hvers eðlis kjötið var, það var skráð á reikninga sem viðskiptavinir fengu og DNA rannsóknir á kjötinu staðfestu einnig að um var að ræða sandreyðarkjöt.

Blaðið New York Times segir, að stjórnvöld í Kalíforníu hafi fengið ábendingu um málið fráa kvikmyndagerðarmönnum, sem gerðu myndina Cove um höfrungadráp í Japan en myndin fékk Óskarsverðlaun um helgina sem besta heimildarmyndin.   

Blaðið sagði að Louie Psihoyos, leikstjóri The Cove, hefði reynt að afla upplýsinga um hvalkjötssölu The Hump. Hefðu starfsmenn hans farið þangað með leynilegar myndavélar og tekið sýni af hvala-suhshi, sem þeir pöntuðu.

Hvalkjötsskammturinn fyrir tvo kostaði 60 dali á The Hump, jafnvirði 7700 króna.

Sandreyður var veidd hér við land framundir lok níunda áratugar síðustu aldar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is