Lengsta ferðalagið með leigubíl

Farþegarnir þurfa ekki að greiða krónu fyrir lengsta ferðalag með leigubifreið sögunnar

Farþegarnir þurfa ekki að greiða krónu fyrir lengsta ferðalag með leigubifreið sögunnar

Ferðamálayfirvöld í Ástralíu eru frumleg að vanda. Í fyrra var auglýst eftir starfsmanni í besta starf í heimi. Nú er auglýst eftir fimm útlendum pörum til þess að taka þátt í lengsta ferðalagi í heimi með leigubifreið.

Um er að ræða níu vikna ferðalag um Ástralíu, 11 þúsund km. Fimm pör fá að taka þátt, eitt frá Nýja-Sjálandi, Malasíu, Singapúr, Þýskalandi og eitt frá Bretlandi. Því miður stendur ferðalagið ekki Íslendingum til boða ef marka má auglýsinguna.

Auk þeirra munu sex áströlsk pör ferðast með leigubifreið sömu leið en ferðalagið hefst þann 9. apríl í Perth.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is