Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 11.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:59
Línuveiðimennirnir í Múlanum
Nú stendur yfir í Jazzklúbbnum Múlanum, sem er samstarfsverkefni FÍH og Jazzvakningar, tónleikaröð og liður í henni eru tónleikar Línuveiðimannanna í kvöld í kjallaranum á Café Cultura á Hverfisgötu.
Línuveiðimennirnir eru þeir Snorri Sigurðarson, sem leikur á trompet, Eyþór Gunnarsson, sem leikur á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson, sem leikur á bassa, og Matthías M.D. Hemstock, sem leikur á trommur. Þeir félagar hyggjast leika leika bop-lög frá sjötta áratugnum eftir m.a. Tadd Dameron og George Shearing. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









