Man ekki hversu oft hann hélt framhjá

Mark Owen man ekki hversu oft hann hélt framhjá spúsu sinni stækka

Mark Owen man ekki hversu oft hann hélt framhjá spúsu sinni DAVID MOIR

Söngvari hljómsveitarinnar Take That, Mark Owen, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá sinni heittelskuðu ítrekað. Owen og unnusta hans til fjölda ára, Emma Ferugson, gengu í hjónaband í nóvember í fyrra.

Hann játar að hafa haldið framhjá henni allt frá þeirra fyrstu kynnum fyrir fimm árum. Owen segist hafa hegðað sér eins og fífl og sjái eftir öllu saman. Hann segist ekki hafa hugmynd um hversu oft hann hélt framhjá né heldur með hve mörgum konum, kannski tíu, segir söngvarinn.

Owen, 38 ára, á tvö börn með eiginkonu sinni, Elwood sem er þriggja ára og Willow Rose  sem er 14 mánaða. 

Meðal kvenna sem Owen nefndir er gjaldkerinn Neva Hanley en tekur fram að hann hafi alltaf vitað að hann myndi kvænast Emmu. Þegar honum hafi liðið illa þá hafi hann alltaf getað leitað til Hanley. „Allar hinar stúlkurnar voru einnar nætur gaman. Þegar ég var á tónleikaferðalögum og úti að skemmta mér, sem var á hverju kvöldi. Ég er ekki í sambandi við neina þeirra núna."

Owen telur sér hins vegar til tekna að hafa ekki haldið fram hjá Emmu frá hjónavígslunni í nóvember, það er í tæpa fjóra mánuði. 

Owen játar syndir sínar í viðtali við The Sun í dag

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is