Menningarverðlaun DV afhent

Menningarverðlaun DV fyrir árið 2009 voru afhent í gærkvöldi, en auk verðlaunanna sem dómnefnd velur í hverjum flokki, voru veitt netverðlaun og sérstök heiðursverðlaun sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti.

Eftirfarandi hlutu menningarverðlaunin að þessu sinni:

Fræði Fornleifastofnun Íslands og Gavin Lucas fyrir Hofstaðaverkefnið og bókina Hofstadir, Excavations of a Viking Age Feasting-hall.

Byggingarlist Halldóra Arnardóttir og Pétur H. Ármannsson fyrir bókina um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt.

Tónlist Daníel Bjarnason fyrir fjölbreyttan árangur sinn á tónlistarsviðinu árið 2009.

Hönnun Hönnunarhópurinn Vík Prjónsdóttir fyrir hönnun á framleiðslu fyrir verksmiðju Víkurprjóns.

Leiklist Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson og Halldóra Geirharðsdóttir fyrir sýninguna Jesúm litla.

Myndlist Listasafn Reykjavíkur fyrir sýningaröð í D-sal Hafnarhúss.

Kvikmyndir Þórunn Hafstað fyrir heimildarmyndina Íslensk alþýða.

Bókmenntir Kristján Árnason fyrir þýðingu sína á Ummyndunum Óvíds.

Svokölluð netverðlaun sem lesendur DV völdu hlaut hljómsveitin Hjálmar. Heiðursverðlaun hlaut svo tónskáldið og píanóleikarinn Jórunn Viðar fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is